Skrifað 26.8.2008 | 19:07: á annarri blogg-síðu - í annarri veröld - Fyrir HRUN:
"Glitnir spáir um vísitölu: he he!
Bankarnir spá og benda á fjárhagsvandann hver um annan þveran- og eiga þó hvað vænstan þátt í erfiðu efnahagsástandi landsins - Þeir stunda, með fullum stuðningi löggjafarþings, gegndarlaust vaxtaokur á verðtyggðum lánum. - Sjálftekt íslenskra banka nú er með algerum eindæmum. Sjálftekt er þjófnaður skulum við muna."
Ekki má sleppa föstum lokaorðum:
"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"
Einkavæðing bankanna óákveðin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 1.4.2009
Einar Kristinn Guðfinnsson bloggar um Jóhönnu Sigurðardóttur. Vill einhver kommentera? Verskú.
--- --- ---
Einar Kristinn Guðfinnsson
sem enn kallar sig sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra bloggaði svo í gær":
"31.3.2009 | 11:11
Jóhanna Sigurðardóttir gerði það af einni saman flokkshollustinni að leysa forystukreppuna sem Samfylkingin var komin í. Þegar fyrir lá að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafði ákveðið að stíga til hliðar út stjórnmálunum og láta af formennsku í Samfylkingunni lenti flokkurinn í miklum hnút. Á þann hnút gat bar einn einstaklingur höggvið; Jóhanna Sigurðardóttir.
Það lá fyrir frá fyrsta degi að hún vildi alls ekki verða flokksformaður. Það vildu hins vegar ýmsir aðrir. Gallinn var bara sá að þá vildi enginn í formannssætið! Staðan var vandræðaleg. Sú sem menn vildu að reddaði málunum, vildi alls ekki verða formaður. Þeir sem höfðu löngunina til að bera, höfðu ekki til þess traust.
Vitaskuld var ljóst frá fyrsta degi hvernig þetta myndi enda. Jóhanna myndi nauðug viljug taka að sér starfið. Hún átti ekki undankomuleið. Svo fékk hún rússneskia kosningu á landsfundinum. Allt var þetta fyrirsjáanlegt og allir gátu séð það fyrir.
Rifjast nú upp ummæli endalausra samfylkingarmanna um fánýti þess að leggja áherslu á stöðu formanns í stjórnmálaflokki. Síðast minnist ég sigurvegarans úr prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík, Sigríðar Ingibjargar sem geipaði mjög í þeim dúrnum í útvarpsþættinum Sprengisandi fyrir svona hálfum mánuði. Svoleiðis skoðanir verða ábyggilega lagðar í saltpækil næstu vikurnar. Þær henta enda illa um þessar mundir fyrir Samfylkinguna.
Kjör Jóhönnu er hugsað til að fleyta flokknum fram yfir kosningarnar. Alveg sama hvað sagt er þá er það augljóst mál. Svo þegar líður aðeins á kjörtímabilið þá munu þeir taka að spretta fram sem segja, nú get ég. Spurningin er aðeins hvort það muni gerast á fyrsta eða öðrum landsfundinum sem haldinn verður eftir kosningarnar nú í vor. Á þcví nenni ég ekki að hafa skoðun."
Unnið fram eftir á Alþingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 31.3.2009
Samson ehf farinn að TALA ?
"Samson ehf. segir að enginn fótur sé fyrir ályktunum um að fjármunum félagsins hafi verið komið undan eða í skjól .." stendur í fréttinni.
Eru nú þessi E-há-eff sem tröllríða efnahag Íslands farin að tala? Ja hérna! þau geta þá væntanlega varið sig sjálf fyrir dómstólum.
--- --- ---
Ekki má sleppa föstum lokaorðum:
"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"
Fjármunir fluttir vegna nýrra fjárfestinga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
mán. 30.3.2009
Um 100 METRA þykkur bunki af $100 seðlum - fer illa í vasa!
".. forstjóri General Motors sagði af sér í gær að kröfu Bandaríkjastjórnar, .. ekki ..auralaus .. fær greiddar 20 milljónir dala .. í eftirlaun og launauppbætur" segir í tengdri frétt.
Séu tveir hundrað dala seðlar um 1 millmetri á þykkt fær maðurinn 100 metra þykkan bunka - gæti skakkað fáeinum metrum ;) Hvað hefði hann fengið - hefði GM gert'ða gott.?
---- ----- -----
Ekki má sleppa föstum lokaorðum:"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"
Fer ekki auralaus úr starfinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
sun. 29.3.2009
Það var nú bara fimmtungur fulltrúa sem streittist á móti
Dægurmál | Breytt 30.3.2009 kl. 08:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (42)
sun. 29.3.2009
Davíð er kominn fram úr Kristi
mið. 25.3.2009
Gylfi ASÍ: Uppsögn vegna stjórnmálaþátttöku - úr starfi sem ekki krefst stjórnmálahlutleysis. Getur sjálfur tekið pokann!
mán. 23.3.2009
Nóg að gera hjá gjaldkera Flokksins! Eða hvað?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (37)
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)