Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009

Myndir af pyndingum eru ekki opinbert "afþreyingarefni" - heldur sönnunargögn

Nauðganir myndaðar Fanga ógnað með hundi í Abu Ghraib fangelsinu".....Barack Obama Bandaríkjaforseti reynir nú að koma í veg fyrir að birtar verði opinberlega .. myndir sem sýna nauðganir og annað kynferðislegt ofbeldi Í Abu Ghraib fangelsinu)" segir í fréttinni´
Ekki förum við fram á að barnaklámmyndir séu sýndar opinberlega.
Hér gildir það sama.  Aðalmálið er að sækja til saka og dæma þá sem stjórnuðu og framkvæmdu ofbeldi gagnvart föngum - ekki spennandi bíósýningar fyrir "áhugasama".

mbl.is Nauðganir myndaðar í Abu Ghraib
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

PÓLITÍSK SILKIHÚFA ráðin - til viðbótar of mörgum slíkum á LSH! Svei því attan!

Einar Karl ráðinn til Landspítalans
Innlent | mbl.is | 27.5.2009 | 11:08

Einar Karl Haraldsson "Einar Karl Haraldsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar í iðnaðarráðuneytinu, hefur verið ráðinn til Landspítalans í sex mánuði, frá og með 1. september nk, til þess að móta og festa í sessi nýtt vinnulag á sviði almannatengsla í samvinnu við forstjóra, framkvæmdastjórn, deildarstjóra kynningarmála og aðra stjórnendur og starfsmenn spítalans."

PÓLITÍSK SILKIHÚFA ráðin til viðbótar of mörgum slíkum á LSH! Þetta getur stjórnin, þó svíki þúsundir heimila landsins með okur-lánabyrði.  -

Jafnaðar- og endurbóta-stjórnin sjálf!

.

Lokaorð: "Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!" 

 


mbl.is Einar Karl ráðinn til Landspítalans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hve margar FJÖLSKYLDUR hafa okurlánin keyrt í þrot ? Hafa stjórnvöld áhuga á því?

85 fyrirtæki í þrot í apríl

Mynd 499130 "Í apríl 2009 voru 85 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta ..." segir tengd frétt.

Halda hagvitringar stjónvalda að takist að byggja upp nýbankana og koma atvinnulífshjólunum margnefndu af stað - fyrir illa fengið fé sem ræna á m a frá yngri fjölskyldum landsins? -  OG svo auðvitað með því að ÆTLA að taka upp EURO eftir mörg ár!

Hrædd er ég um að brýndir verði búrhnífar fyrir næstu byltingu.

.

Lokaorð: "Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"


mbl.is 85 fyrirtæki í þrot í apríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvæg alþjóða-samskipti - sem sendimenn, sæfarar og aðrir munu hafa stundað LENGI

Eftirspurn eftir vændi í Kaupmannahöfn
 
Útsýni úr Sívalaturninum við Kaupmangaragötu. "Mikil viðskipti hafa verið hjá vændiskonum í Kaupmannahöfn í Danmörku undanfarna daga en þar hefur staðið yfir alþjóðleg ráðstefna um loftslagsmál" segir í tengdri frétt.

Er annars nokkuð nýtt að frétta af alþjóðasamskiptum?

.

Lokaorð: "Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"


mbl.is Eftirspurn eftir vændi í Kaupmannahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætla SA ef til vill að kría út á þetta LAUNALÆKKUN hinna LÆGST launuðu?

"Gengi krónunnar skýrir hækkun vísitölunnar." Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að hækkun vísitölu neysluverðs nú megi nánast eingöngu rekja til gengis krónunnar ""

Mannvitsbrekkan segir heldur betur tíðindi! Ætlar hann ekki að kría út á þetta LAUNALÆKKUN hinna LÆGST launuðu? - ASí-formenn og jafnaðarmanna-stjórnin hljóta að skilja þörf þess fyrir atvinnulífshjólin margumræddu!

.

Lokaorð: "Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"


Ný og betri leið til lausnar á vanda ríkisins - (Björn Valdimarsson Mbl. 25. maí '09)


 
"Formenn stjórnarflokkanna munu ..eiga fund með fulltrúum Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um stöðugleikasáttmála..."  segir í tengdri frétt.

Jú, jú! Þau vilja vel!   En lesið hér grein fá almennum, íslenskum borgara sem ekki fer með fleipur dags daglega:

Grein í Mbl (bls 25) 25. maí '09: 

 Ný og betri leið til lausnar á vanda ríkisins.

NÚ VANTAR fé til að forða ríkinu frá niðurskurði og leysa vanda nýju bankanna og fjármagnseigenda. Ein leið sem ekki hefur verið talað um er að hækka vísitöluna handvirkt um 25%, þannig að ef vístölutryggðar skuldir heimila eru nú 1200 milljarðar króna þá hækka þær um 300 milljarða eða í 1500 milljarða. Hér væru þá komnar tekjur upp á 300 milljarða króna. Svo má hækka gengistryggð lán um 50% (það voru nú soddan fífl sem tóku þau að þau geta nú alveg borgað). Ef þessi lán standa nú í 800 milljörðum nást þar 400 milljarðar í tekjur. Samanlagt verða þetta tekjur upp á 700 milljarða króna sem nægja til að rétta af ríkishallann, leysa vanda nýju bankanna, hækka eignir lífeyrissjóðanna og hækka eignir fjármagnseigenda til að mæta tapi sem þeir hafa orðið fyrir vegna ónýtra peninga- og skuldabréfasjóða bankanna og tapaðra hlutabréfa.
Heimilin sem geta borgað eiga að sjálfsögðu að borga, þeir sem væla geta fengið greiðsluaðlögun. Jafnt skal yfir alla ganga og því er lagt til að miða við að allir verði búnir að greiða skuldir sínar þegar þeir hafa náð 200 ára aldri.
Ef einhverjir eru enn í vandræðum er boðin greiðsluaðlögun. Allir einfættir, tvíhöfða menn sem hafa verið atvinnulausir í 4 mánuði og hafa allar skuldir í skilum geta mætt á skrifstofu ráðdeildarsýslu ríkisins. Skrifstofan er til húsa á Lækjargötu 2, Hvammstanga, opið verður annan hvorn mánudag frá 9-10 fram til 30. maí en frá þeim tíma verður lokað vegna sumarleyfa til 30. september.
Með þessu móti geta Jóhanna, verndardýrlingur fjármagnseigenda og Steingrímur, talsmaður erlendra kröfuhafa, fullkomnað skjaldborgina um fjárhag sinna skjólstæðinga.
Mér finnst ég þurfa að taka það fram að framangreint er meint sem kaldhæðni og öfugmæli. Það er full ástæða til að geta þess sérstaklega því ráðamenn þjóðarinnar og stór hluti hennar virðist almennt vera skilningssljór. Það virðist mörgum erfitt að skilja að þær álögur sem lagðar hafa verið á skuldir landsmanna vegna stórkostlegrar vanhæfni bankamanna og athafna mafíósanna (stundum kallaðir auðjöfrar) í skjóli ríkisvaldsins síðustu ár eru ekki ásættanlegar og þær verður að leiðrétta.
Ef það verður ekki gert verður ekki nóg að mæta með búsáhöld á Austurvöll.

BJÖRN VALDIMARSSON,
hönnuður.


mbl.is Fundað um stöðugleikasáttmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjófurinn þrífst, en þjófsnauturinn ekki!

Í tengdri frétt er látið sem núverandi kvóta-"eigendur" hafi keypt löglega eign! Svo er ekki! Fyrstu sægreifarnir og afkomendur þeirra seldu "auðtrúa" fólki það sem þeir áttu ekki. Ekki flóknara en það, Lög í flestum, ef ekki öllum, löndum taka sérlega fram að keypt þýfi  sé enn eign þess er stolið var frá. Sem sagt: kaupir þú þýfi verður þú að skila því bótalaust til eiganda!

Ágúst Valdimarsson má þakka fyrir að almenn hegningarlög eru ekki látin gilda um kvótasölu.

.

Lokaorð: "Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"

 


mbl.is „Eigandinn heldur áfram að borga“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögreglukórinn og stolnu hjólin

Frétt af mbl.is:
"Lögreglan þarf að geyma alla óskilamuni í eitt ár og einn dag samkvæmt konungslögum frá árinu 1767. Þegar óskilamunir eru seldir á uppboði rennur andvirðið til félagsstarfs lögreglunnar, til að mynda Lögreglukórsins."

Hvað hindrar tryggingafélögin í að koma á skráningu allra hjóla keyptra á Íslandi? Lögreglukórinn græðir sýnilega ekki mikið á týndu hjólunum, miðað við það sem tryggingafélög borga og ótryggðir tapa.

.

 Lokaorð: "Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"


mbl.is Lögreglukórinn og stolnu hjólin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ASÍ gaf tóninn er gaf eftir samningsbundna hækkun 1. mars. Villi Egils telur sig enn með tögl og hagldir!

Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. "„Ég þarf að jafna mig eftir þetta klaufaspark,“ segir Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins um tillögur Samtaka atvinnulífsins ..Samtökin vilja að lægstu laun hækki um 7.000 krónur 1. júlí en aðrar launahækkanir bíði hausts." segir í tengdri frétt!

ASÍ gaf tóninn, er gaf eftir samningsbundna hækkun 1. mars. Villi telur sig augsýnilega enn vera með tögl og hagldir - og ætlar að nýta út í æsar!

.

 Lokaorð: "Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"


mbl.is Þiggja ekki 7 þúsund sí-svona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir hverja - aðra en forstjórana og gæðinga - eru lífeyrirssjóðirnir ?

  Undrast dráttarvexti á eigin lífeyri
Innlent | mbl | 20.5.2009 | 10:34
Mynd 487961 Karlmaður sem missti skuld vegna vangoldinna lífeyrissjóðsiðgjalda í lögfræðiinnheimtu undrast að þurfa að greiða öll gjöldin sem leggjast á skuldina vegna eigin lífeyris á efri árum. ------      
Framkvæmdastjóri Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda: "Við göngum eins langt og okkur ber að gera. Það getur ýmislegt fylgt því.“ .. 

..segir í tengdri frétt - og verður ekki betur séð í en til greina komi að bjóða upp eigur fólks vegna vanskila á þess eigin lífeyri!

Fyrir hverja - aðra en forstjórana, stjórnirnar og innheimtulögfræðinga - eru lífeyrissjóðirnir í núverandi mynd?

.

Lokaorð: "Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!" 

 


mbl.is Undrast dráttarvexti á eigin lífeyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband