fim. 19.2.2009
ÍSLAND Í DAG: Verðtryggingu valda ólög - Gengistrygging er ó-lögleg og raunvaxta-OKUR viðgengst!
"Skuldsetning íslenskra heimila hefur .... vaxið hratt og eru
samanlagðar .. nú um 2.000 milljarðar króna. . um 1.400 milljarðar verðtryggð lán 370 milljarðar gengistryggð lán. .Skuldir hækka, greiðslubyrði eykst og ráðstöfunartekjur lækka. Þetta er veruleikinn í heimilisbókhaldi flestra fjölskyldna í dag. Staðan veldur mörgum heimilum verulegum vanda . Sá hópur sem við þurfum sértæk úrræði fyrir til þess að forða frá gjaldþroti, ... á þrítugs- og fertugsaldri sem eru viðkæmastir. ...... með hlutfallslega hæstu greiðslubyrðina og flest börn á framfæri" segir í tengdri frétt.
það er litlu við að bæta hér nema ábendingu um að íslenskt þjóðarbú lifir ekki af að halda þessum vitleysisgangi áfram. Byssuleyfi banka og annarra lánastofnana á yngsta fólkið í landinu verður að afturkalla strax. Þá þarf að ógilda alla gengisviðmiðun lána, enda stenst hún ekki lög -OG gera ráðstafanir til að létta verðbótahækkun af öllum lánum að minnsta kost 1 ár aftur í tímann, eða til þess tíma er gengisfall hóf að hækka lánin. Þetta ER hægt - Vilji og vit er allt sem þarf! Gunnar Tómasson hagfræðingur hefur þegar sýnt fram á færa leið.
Föst lokaorð:
"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-gálginn verði höggvinn niður!"
Heimilin skulda 2.000 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 18.2.2009
Er búið að setja ASÍ forkólfa á einföld taxtalaun enn?
"Miðstjórn Alþýðusambands Íslands segir, að ekki sé boðlegt að á meðan hriktir í grunnstoðum samfélagsins og fjölskyldum og fyrirtækjum blæðir, horfi þjóðin upp á ......Slík lítilsvirðing við þjóðina er ekki líkleg til að auka tiltrú hennar á ......" segir m a í tengdri frétt. Þá mælist miðstjórnin til að nú verði farið að vinna...
ASÍ - forkólfar geta Vel farið að gera eitthvað! Það þýðir ekki að gjamma bara að öðrum, eftir að hafa lúpast undir hótunum atvinnurekenda með skottið milli fótanna!
Er búið að setja þau 80 prósent formanna ASÍ sem frestuðu umsömdum launahækkunum 1. mars nk. á einföld taxtalaun frá 1. mars? Býst ekki við því.
Föst lokaorð:
"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-gálginn verði höggvinn niður!"
Þingmenn sýna þjóðinni lítilsvirðingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
"Á fundi formanna aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands var samþykkt að fresta til júníloka endurskoðun kjarasamninga og þeim launahækkunum til félagsmanna á hinum almenna vinnumarkaði sem ættu að koma til 1. mars nk. Það er yfirgnæfandi meirihluti fulltrúa okkar aðildarfélaga sem telur skynsamlegast....... " segir í tengdri frétt
Það eru víst Ísfirðingar og örfáir aðrir aðilar innan ASÍ sem neita þeirri ósvinnu að stöðva örlitla launahækkun í bullandi verðbólgu - af ótta við atvinnurekendur! Sennilegt er að for-feður og -mæður Ísfirðinganna sem mestu fórnuðu og harðast börðust fyrir réttindum verkalýðsins á Íslandi framan af síðustu öld, létu ekki nægja að snúa sér við í gröfinni við slík svik. - Þau kæmu upp úr gröfunum og færu sjálf í aðgerðir! Þá eru enn á lífi margar manneskjur sem börðust af einurð fyrir kjarabótum launamanna og mega nú horfa upp á þetta.
Miklar endemis hálauna-lyddur eru þessi 80% forystumanna ASÍ!
Föst lokaorð:
"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-gálginn verði höggvinn niður!"
Frestun samþykkt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
"Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra staðfestir í samtali við mbl.is að ákvörðun fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Guðlaugs Þórs Þórssonar, um St. Jósefsspítala verði snúið við. Sjúkrahúsið verður starfrækt áfram sem sjúkrahús. Sú áhersla sem menn ætluðu að leggja á öldrunarþáttinn verður einnig endurskoðuð, segir Ögmundur. " segir í tengdri frétt.
Í fréttinni sá undirrituð einnig að ráðherra ræddi málin við fulltrúa St. Jósefsspítala, LSH og Sjúkrsjúkrahússins í Keflavík/Reykjanesbæ áður en tók ákvörðun! OG: að til stendur að samræma vinnu stofnananna í samráði við fulltrúa þeirra!
Ég veit ekki um ykkur, en mér finnst á sama tíma mjög gott að lesa um sýnishorn af skynsamlegum vinnubrögðum - og mér finnst voðalegt að svo sjálfsögð vinnubrögð ráðherra teljist tíðindi!
Guð láti gott á vita - að framhald í viðreisn heilbrigðiskerfisins haldi áfram á sömu braut hjá löggjafarþingi og ríkisstjórn eftir kosningar í vor.
Lokaorðin:
"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-gálginn verði höggvinn niður!"
Ákvörðuninni verður snúið við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
lau. 14.2.2009
Þjóðin kýs væntanlega um ESB aðild - að vel athuguðu máli. Mun ESB-þráhyggja hrinda okkur aftur í auðvaldsklærnar??
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
lau. 14.2.2009
Auðvitað er of hættulegt að benda á þVOTTAHÚSIN
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fös. 13.2.2009
Ný-Sjálfstæðisflokkur í burðarliðnum?
Dægurmál | Breytt 14.2.2009 kl. 14:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
fim. 12.2.2009