"Félag íslenskra stórkaupmanna (FÍS) hefur viðurkennt að innan félagsins hafi átt sér stað umræður um verðlagsmálefni .........á sviði matvöru. ....bæði á vettvangi stjórnar félagsins og innan matvöruhóps FÍS og hafi þær gengið lengra en samkeppnislög heimila" segir, m.a., í tengdri frétt
Sekt fyrir athæfi FÍS mat samkeppnisráð "hæfilega" vera 1 - eina -milljón íslenskra Núkróna!
Að vísu hafa dómar á kynferðisafbrotamenn lengi verið "sanngjarnir" með afbrigðum á Íslandi, einnig hafa morðingjar sloppið nokkuð vel. Fjármála-afbrot hafa hinsvegar ekki liðist vel, sérlega ekki ef brotamenn voru smákrimmar, eða brutu gegn stórlöxum og RÍKINU! Nú voru það BARA neytendur og lántakendur sem töpuðu - meðan ríkið og bankarnir græddu! Hva - það skiptir varla miklu!
I milla í sekt .... svo aftur út að leika ykkur og aldrei gera sona attur!
Ja-hjerna hér!
FÍS viðurkennir brot á lögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
"Stjórnendum sviða Landspítalans verður fækkað um allt að tuttugu á næstunni, en ekki stendur þó til að segja upp fólki. Hulda Gunnarsdóttir, forstjóri LSH segir að við þetta muni launakostnaður eitthvað lækka. Þetta kom fram í seinni fréttum Ríkissjónvarpsins í kvöld." Segir í tengdri frétt.
Undirrituð las nýlega frétt um ráðstefnu þar sem Forseti lækninga á LSH kæmi fram. Ef til vill var prentvillupúkinn á ferð ;) Hvað um það. Gott er að sjá að silkihúfum fækkar svolítið á þeim bæ. Síst hefur þjónustan batnað í áranna rás með sífelldri fjölgun þeirra.
Stjórnendum fækkað á LSH | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
mið. 11.2.2009
Gangi þér allt í haginn, Eiríkur!
"Eiríkur Guðnason, seðlabankastjóri, hyggst láta af störfum fyrsta júní næstkomandi. Þetta kemur fram í bréfi, sem Eiríkur hefur skrifað Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Hann fagnar því að hún ætli að tryggja að sem minnst röskun verði á starfsemi Seðlabankans við fyrirhugaðar breytingar. " segir í tengdri frétt.
Það hlýtur að vera léttir að komast burt úr skugga 'MIKIL-mennisins.'
Eiríkur hættir í júní | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
"Þetta er nú sett í annað samhengi og gefin önnur merking en var í okkar samtali, segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, spurður út í viðtal sem hann átti við blaðamann Financial Times Deutschland.Það sé ekki rétt að hann hafi alfarið hafnað því að þýskum sparifjáreigendum verði bætt tap. " segir í tengdri frétt.
Á nú að trúa túlkun blaðamanns "Financial Times Deutschland" á samtali fremur en orðum ÓRG ? Það sé ég þegar mjög víða í bloggi, enda er áróðri nú mjög beint að forsetanum allt frá stjórnarslitum - m a fullyrt af háttsettum í Flokknum Eina að ÓRG "standi að baki" myndunar núverandi ríkisstjórnar!
Ég fullyrði að orð DO í hinu fræga "Kastljós"-viðtali sl. haust voru mis/of-túlkuð og tekin úr samhengi - þó margt sé annars hægt að álasa DO fyrir. Sama gildir hér! Persónurnar DO og ÓRG eru spurðar um margt, af mörgum. Fáist ekki svör má saka um dónaskap, sé svarað er það vanvirða og misnotkun á embætti. VANDLIFAÐ! Í þokkabót er hvorugur maðurinn stjórnandi Íslands.
Finnið alvörumál að leysa. Nóg er af þeim! Snakk um Forsetaembættið og ásakanir á hendur forseta nú er hjá flestum leið til að þyrla upp ryki í því skyni að leyna alvöru-afglöpum og tefja björgunarstörf sem eru brýn. Fyrst og fremst áróður fyrir komandi kosningar. Ja- svei!
Viðtalið tekið úr samhengi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
mán. 9.2.2009
Hér gefst færi á athugasemdum við skrif Einars K. Guðfinnssonar um hvernig ráðherrar eigi að að haga sér!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.2.2009 kl. 02:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
fös. 6.2.2009
Voru það 10 manns, eða fleiri, sem DO henti út úr forsætisráðuneytinu er settist þar, Kjartan?..
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
fim. 5.2.2009
Gott er ef tekst að bjarga St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Alvörutiltekt í rústum heilbrigðiskerfisins bíður nýrrar stjórnar
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)