Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009
mán. 13.4.2009
Enginn hálfdrepinn í Reykjavík heila nótt - Stendur til bóta - SKEMMTI-staðir opna í dag
13.4.2009 | 7:27 "Allt var með kyrrum kjörum á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Engar tilkynningar voru um líkamsárásir .... "
segir í tengdri frétt.
Þetta stendur til bóta: Skemmtistaðirnir opna aftur í dag!
--- --- ---Ekki verður föstum lokaorðum sleppt:
"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"
![]() |
Rólegt í höfuðborginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
lau. 11.4.2009
Loftur Altice Þorsteinsson! - góður að vanda ;)
Samfylkingin fjármögnuð af Evrópusambandinu ?
"Alvarlegar grunsemdir hafa vaknað um að Samfylkingin hljóti umfangsmikla fjárstyrki frá Evrópusambandinu, beint og óbeint.... " segir í pistli LAÞ frá 9. apríl sl.
Virðist Loftur hafa ætlað að hreinsa FL-okkinn af allri sök um óviðeigandi móttöku peningagjafa, með þeim rökum að Samfylkingin HAFI ÖRUGGLEGA gert eitthvað jafnslæmt eða verra.
Undirrituð las umræðuna, 46 færslur alls - og komst að eftirfarandi niðurstöðu:
" Loftur þessi er svo Rökþéttur í sinni "sælu trú" - að það er fullkomlega tilgangslaust að rökræða við hann. Hef séð til mannsins áður. Þetta væri fyndið ef væri ekki sorglegt. Tragíkómiskt!
ES: Loftur má þó eiga það sem hann á: hann leyfir athugasemdir við bloggið sitt. Sennilega er það vegna þess að hann tekur ekki mark á þeim. "
Nú vildi svo skoplega til, að þegar átti að færa þetta inn, reyndist undirrituð í banni á síðu Lofts;) Hef sennilega gagnrýnt eitthvað hjá blessuðum manninum þegar leit við hjá honum einu sinni fyrir margt löngu.
Veit ekki um aðra - en mér finnst fyndið að vera á leið að pota inn á mann hrósi fyrir að taka við athugasemdum og koma þá að læstum dyrurm - vegna fyrri athugasemda! Að öðru leyti er ekkert nýtt um blogg LAÞ að segja.
--- --- ---
Ekki verður föstum lokaorðum sleppt:
"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"
![]() |
Allt komið fram sem máli skiptir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
"Mikill titringur hefur verið innan Sjálfstæðisflokksins síðustu daga vegna frétta.." segir í tengdri frétt.
Hörðustu varnarmenn Fl-okksins hér á Mogg-bloggi eru ýmist lagstir í fréttir af enska boltanum - eða lýsa frati á hegðun forystunnar. Fréttir berast af úrsögnum og því um líku!
Ein lausnin fyrir þá sem enn vona að Flokkurinn rísi hreinn úr öskunni - er að kjósa O eftir 2 vikur - og bíða svo eftir árangri langrar meðferðar og endurhæfingar Flokksins Eina. Á meðan yrðu á Alþingi nokkrir óflokkaðir og óflekkaðir fulltrúar!
Stjórnlagaþing er síðan nauðsynlegt til að að endurreisa grundvöll íslenskra stjórnmála.
---- --- ----
Ekki verður föstum lokaorðum sleppt:
"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"
![]() |
Sjálfstæðisflokkurinn logar vegna styrkjanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 10.4.2009
Vesæll bakaradrengur hengdur - enginn smiður krossfestur -og það á föstudeginum langa ?
"Engin niðurstaða að loknum þingflokksfundi" segir í tengdri frétt
Getur verið að menn ætli loks að hugsa sinn gang? - og hætta hengingum og krossfestingum rétt í bili - þótt dagurinn hæfi óneitanlega vel til aftöku.
---- --- ----
Ekki verður föstum lokaorðum sleppt:
"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"
![]() |
Framhaldið í höndum formannsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
fös. 10.4.2009
FL-okkurinn er ekki einn um krossfestingar
PASSÍUSÁLMUR NR. 51
Á Valhúsahæðinni
er verið að krossfesta mann.
Og fólkið tekur sér far
með strætisvagninum
til þess að horfa á hann.
Það er sólskin og hiti
og sjórinn er sléttur og blár.
Þetta er laglegur maður
með mikið enni
og mógult hár,
Og stúlka með sægræn
augu segir við mig:
Skyldi manninum ekki leiðast
að láta krossfesta sig?
(Steinn Steinarr)
![]() |
Þrjátíu krossfestir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
"Bjarni Benediktsson.. sagði .í kvöld, .. að þeir sem óskuðu eftir styrkjum frá FL Group og Landsb. ..hefðu ekki verið kjörnir fulltrúar..heldur menn sem tóku að sér fjáröflun fyrir flokkinn. " segir í tengdri frétt.
Gerir aðkeypt vinnuafl - sem sé málaliðar - í fjáröflun, kosningaáróðri og öðrum skítverkum - kjörna fulltrúa hreina?
Minnug tals varaformanns um hvítþvegnar bleyjur, má búast við að aðkeypt lið sjái líka um þvottana í Höllinni.
---- --- ----
Ekki verður föstum lokaorðum sleppt:
"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"
![]() |
Ekki kjörnir fulltrúar flokksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fim. 9.4.2009
Örsaga dagsins um ástand Íslands
Örsaga dagsins er skrá mbl.is-frétta:
Helst í fréttum 9. apríl 2009:
Guðlaugur Þór hafði forgöngu um styrkina
Styrkir endurgreiddir
Geir segist bera ábyrgðina
Metaðsókn í ókeypis súpu
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Nú eru nákvæmlega 60 ár síðan Flokkurinn sýndi fasiskt yfirgangs-eðli sitt er hindraði þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu í Nato. Síðan þá hefur hann haft tögl og hagldir í viðskiptalífi þjóðarinnar.
Þessi mál eru rannsóknarefni - og verða áfram rannsökuð. Hvernig heldur fólk að bókahaldi sl. 60 ára yfir STYRKI til Flokksins frá fésýslumönnum Íslands - Stórkaupmönnum - útgerðarmönnum - kvótagreifum - o s frv líti út?
Í venjulegu landi væri flokkur sem hagar sér svona búinn að vera eftir nýjustu fréttir af verndargreiðslum. Flokkurinn Eini er MAFÍA ÍSLANDS og hann og stuðningsaðilar hafa nú komið almenningi á knén. Eiga nóg fé til að hindra framgang réttvísi - og eru að því!
---- --- ----
Ekki verður föstum lokaorðum sleppt:
"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"
![]() |
Guðlaugur Þór hafði forgöngu um styrkina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
mið. 8.4.2009
Hvenær verður styrknum frá Mæðrastyrksnefnd skilað?
"Ný forysta Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að flokkurinn skuli endurgreiða ------ Segir formaður flokksins að þessir styrkir séu óeðlilega háir. " segir í tengdri frétt.
Eru eldri forystumenn, s. s. Þorgerður Katrín, þá ósammála endurgreiðslunum!
Verður greitt verðtryggt - með stýrivöxtum - eða stendur til að hirða vextina?
Vita nýja og gamla forysta Flokksins hver ávöxtun 55 milljón króna var hjá bönkunum sl. 2 ár og 3 mánuði?
---- --- ----
Ekki verður föstum lokaorðum sleppt:
"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"
![]() |
Styrkir endurgreiddir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
"Geir H. Haarde, .....segist einn bera alla ábyrgð á því, að flokkurinn tók við 30 milljóna króna framlagi frá FL Group ..." segir í tengdri frétt.
Geir tekur á sig syndirnar
- Ekki fór forveri hans eins að: Sá klifraði ekki sjálfur á krossinn. Minnihlutastjórn - takið eftir minnihlutastjórn - krossfesti næstsíðasta formann!
Tímasetningin er að minnsta kosti góð - dymbilvikan!
---- --- ----
Ekki verður föstum lokaorðum sleppt:
"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"
![]() |
Geir segist bera ábyrgðina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)