Allsgáður ökumaður á Eskifirði - þið segið fréttir :)

"Ekið var á gangandi vegfaranda á Eskifirði upp úr klukkan tvö í nótt. ...Ökumaðurinn var alsgáður.." segir í frétt mbl.is

Allsgáður ökumaður á Eskifirði - þið segið fréttir Whistling  

                                ...    ....   .....

Bæti hér við     XO - Þjóðin sjálf á þing!       og:   XV - Allt er vænt sem vel er grænt!

(OG: FLokkinn í meðferð og endurhæfingu!)

Undirrituð er hér með hætt að blogga um stjórnmálahreyfingar fram yfir næstu kosningar.  Sjáumst!

                                 ______

Föst lokaorð:

"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"  


mbl.is Ekið á gangandi vegfaranda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

alsgáður og frá Eskifirði ???? Getur bara ekki verið satt

Finnur Bárðarson, 19.4.2009 kl. 17:23

2 Smámynd: Hlédís

Voru það annars Eskfirðingar sem átu útsæðiskartöflurnar forðum?

Hlédís, 19.4.2009 kl. 17:31

3 identicon

Það er allavega óhætt að segja að það sé ekki sama klikkunin á Eskifirði og er hérna í Reykjavík!

Alltaf útúrdópað og drukkið lið útum alla Reykjavík held að það finnist lítið af því á Eskifirði.

Skammast mín að búa í þessari skíta borg, ætti kannski bara að flytja á Austfirði og kannski bara Eskifjörð.

Hildur (IP-tala skráð) 19.4.2009 kl. 17:37

4 Smámynd: Offari

Ég er nú reyndar oftast alsgáður hér á Eskifirði. En ég hef samt ekki séð ástæðu til þess að aka þar á gangandi vegfarendi því hér sjást engir útrásarvíkingar á ferli.

Offari, 19.4.2009 kl. 17:51

5 Smámynd: Hlédís

Hildur þó!

Talar þú svona um Reykjavík, vora heittelskuðu, nær heilögu höfuðborg?

Hlédís, 19.4.2009 kl. 17:51

6 identicon

Hildur: Ég komst fyrst í kynni við Hass og brjálaða afengisdrykkju einmitt á Eskifirði fyrir all mörgum árum síðan. Ég er ættaður þaðan. Svona vandamál eru allstaðar hvort sem er á minni stöðum eða stærri. Eskifjörður er hvorki betri né verri en aðrir staðir.

Annars átta ég mig ekki á þessari færslu hjá þér Védís. Eiginlega úti í hött. Hvert ertu að reyna að fara með henni?

kristjan (IP-tala skráð) 19.4.2009 kl. 17:57

7 Smámynd: Hlédís

Kæri Finnur og Offari!

Menn leika stundum á als oddi drukknir, en eru ævinlega allsgáðir ódrukknir.

Offari, segðu mér í trúnaði: Voru það Eskfirðingar sem átu útsæðið?

Hlédís, 19.4.2009 kl. 17:58

8 Smámynd: Hlédís

kristjan minn!

Ég heiti Hlédís og var eingöngu að grínast með fréttina. Held einmitt að Eskfirðingar aki almennt ódrukknir!

Hlédís, 19.4.2009 kl. 18:01

9 Smámynd: Offari

Ég hef enga hugmynd um það hvort Eskfirðingar hafi étið útsæðið. Ég hef verið búsettur þar í tæp 3 ár en þarf líklega að yfirgefa austurlandið vegna húsnæðisskortsins.

Offari, 19.4.2009 kl. 18:10

10 identicon

Hlédís: Ok.. Point taken... :)

Eigðu góðan dag.

kristján (IP-tala skráð) 19.4.2009 kl. 18:10

11 Smámynd: Hlédís

Húsnæðisskorts, Offari?

Hlédís, 19.4.2009 kl. 18:20

12 Smámynd: Hlédís

Vertu blessaður, kristjan!

Annars hafðirðu á réttu að standa. Pistillinn er sundurlaus og út í hött, - eða þannig ;)

Hlédís, 19.4.2009 kl. 18:24

13 identicon

Jú það voru eskfirðingar sem átu útsæðið og kyntu undir pottunum með girðingastaurunum sem átti að girða af kartöflugarðinn...

kartöflubóndi (IP-tala skráð) 19.4.2009 kl. 19:34

14 Smámynd: Hlédís

Ég mundi þá rétt að það varð til einhver "Hafnfjarðar"-brandari um Eskfirðinga og kartöflur hér í fyrndinni. Hef þó ekki heyrt þetta um girðingastaurana! Takk!

Hlédís, 19.4.2009 kl. 19:39

15 Smámynd: TARA

       







TARA, 19.4.2009 kl. 20:02

16 Smámynd: Hlédís

Flott Tara!

Nú verð ég að fara að kynna mér hvernig set einfalda tengingu í bloggið hvað þá myndir og sprell ;)

Hlédís, 19.4.2009 kl. 20:13

17 Smámynd: Hannes

Er þetta landsbyggðarpakk það drykkfellt að það þarf að taka það fram að það sé edrú þegar slys verða? 

Hannes, 19.4.2009 kl. 20:21

18 Smámynd: Hlédís

Ma'r skyldi ætla það af fréttum þessa mbl-pakks

Hlédís, 19.4.2009 kl. 20:34

19 Smámynd: Hannes

Ég var bara að velta því fyrir mér. Það er aldrei að vita hvernig þetta lið úti á landi er enda margt hvert stórhættulegt alveg eins og verstu dopistar í Reykjavík en það er sem betur fer ekki stór hluti.

Hannes, 19.4.2009 kl. 20:38

20 Smámynd: TARA

 You're Nuts Thumbs Down Hannes ég trúi ekki að þú hafir sagt þetta...landsbyggðarpakk...taktu þetta til baka....





TARA, 19.4.2009 kl. 22:39

21 Smámynd: Hannes

Tara ég sagði þetta í kaldhæðni enda er stundum talað um landsbyggðarfólk sem pakk. Ég sagði þetta því mér fannst þetta henta vel við þessa frétt og þessa grein.

Hannes, 19.4.2009 kl. 23:27

22 Smámynd: TARA

 Cheers! The Jokes On Youbara grínast  





TARA, 19.4.2009 kl. 23:38

23 identicon

vá hvað þið eruð ógeðslega þröngsýn þarna á höfuðborgarsvæðinu... get nú bara sagt ykkur að við erum sko ekkert verri en þið

raijaantilope (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 10:11

24 Smámynd: TARA

raijaantilope....taktu þér tíma til að BROSA.....

TARA, 22.4.2009 kl. 12:12

25 Smámynd: Hlédís

Sæl, kæra raijaantilope

Bið að heilsa austur!

Hlédís, 22.4.2009 kl. 12:35

26 Smámynd: Hannes

Já við erum álíka þröngsýn og fólk úti á landi fyrir utan það að margir á landsbyggðinni skemmta sér við það að berja reykvíkinga þegar í þá næst en ég hef ekki heyrt svipað gerast í Reykjavík.

Hannes, 22.4.2009 kl. 21:56

27 Smámynd: TARA

Ég hef aldrei barið neinn Reykvíking....og er ég þó utan af landi  Spread Happiness

Annars gleðilegt sumar öll og þökk fyrir veturinn. 





TARA, 22.4.2009 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband