"Niðurstaðan er sú að þingflokkurinn fellst á að verja ríkisstjórn Samfylkingar og VG vantrausti. Það gerum við í trausti þess að þau skilyrði sem við höfum sett, verði uppfyllt, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins þegar þingflokksfundi framsóknar lauk. _ segir í frétt Mbl í kvöld. -
Gæfan fylgi 83 daga hlaupurunum - ekki mun af veita.
Skil ekki hversvegna þarf að kjósa í apríl-mánuði - meðan mun hættara er við slæmu veðri og ófærð - en 2 vikum seinna! VG eru víst ánægðir með þetta. Vildu kosningar fljótt. 4-flokkarnir eiga auðvitað svolítið minna á hættu að nýtt alvöruframboð, gegn þeim öllum, komist af stað á svona skömmum tíma. Við segjum eins og Jóhanna forðum: Okkar tími kemur!
Framsókn ver nýja stjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
apríl er valin til þess að þóknast VG og Framsókn enda ríða þau á velgengnisbylgju þessa dagana.. sem sagt kosningar fyrir flokkana en ekki fyrir fólkið !!
ÞAr að auki verð ég ekki á landinu í apríl og ef nýju framboðin verða ekki tilbúin í byrjun mars er ég úr leik í þessum kosningum.. því ég mun ekki kjósa neinn af gönlu flokkunum.
Óskar Þorkelsson, 31.1.2009 kl. 21:13
Mér líður eins og pólitískum plastpokamanni. Ég er ákaflega hræddur um að siðbótin sé yfirborðsleg og hreinsunin sé venjubundinn kattarþvottur.
Því miður.
Sigurður Þórðarson, 31.1.2009 kl. 21:31
Vel orðað og sorglega satt, Sigurður!
Hlédís, 31.1.2009 kl. 21:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.