Færsluflokkur: Dægurmál

Og D-listaáróðurs-kórinn hóf upp raustina þegar í gær! Öllu tjaldað sem...

...til er!  Greinilega ER kosninga-áróðursherferðin hafin og nú helst reynt að ýkja og snúa út úr orðum forseta lýðveldisisns í gær, er hann greindi  hreinskilninislega frá því er hann teldi aðalatriði. Undirrituð spáði þessu hér í bloggi þegar í gær, er B. nokkur Þórhallsson gaf tóninn í beinni útsendingu RÚV.
Ekki kaus ég ÓRG - er næstu jafnandvíg því að  umdeildir stjórnmálamenn setjist í forsetastól og að þeir troði sér í Seðlabankastjórastöður - en afspyrnu leiðist mér og fleirum hneykslunar-áróðurs kórinn. Hér er á  ferðinni sama fólk og tuðaði um Hörð Torfason alla síðustu viku - nema nú er enn meira í húfi fyrir FLOKKINN!


mbl.is Falið að mynda stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"D-lista áróðurslykt" af nöldrinu, Hvar stendur þessi sérfæðingur í flokki?

Ekki kaus ég ÓRG - er næstu jafnandvíg því að "aflóga" stjórnmálamenn (fyrirgefið frönskuna!) setjist í forsetastól og að þeir troði sér í Seðlabankastjórastöðu. 

Hér er greinilega hafin tuð-herferð í áróðursskyni. Undirrituð spáði þessu hér í blogg þegar í gær, er B. nokkur þórhallsson gaf tóninn í beinni útsending RÚV. 


mbl.is Stórkostlegur misskilningur forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversvegna er þetta tilkynnt svona skyndilega? Er VARAMAÐUR hans ...

nauðsynlegur inná?

Reynið  að halda því sem eftir er af virðingunni! Engin áberandi Plott rétt á meðan baslað er við að koma hinni margumræddu Þjóðarskútu á kjöl!


mbl.is Ágúst Ólafur hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kæri Geir, ekki missa þig í skítkast. Því miður varð ekki af Þjóðstjórn - skiljanlegt þó..

er þingmenn beggja stjórnarflokka hefja klögusöng og gagnkvæmar ásakanir um vanhæfni ;)  

Kröfufólk  hefur einmitt bent á vanhæfni ykkar sl.16 vikur - Búsáhaldabyltingin nú sl. viku með lögreglu-óeirðum sem stigmögnuðust yfir á hættulegt stig um tíma, rak svo endahnútinn.

Þú skilur innst inni að enginn í þingflokknum þinum er hæfur til að stýra starfsstjórn sem friður yrði um.  Að nefna til varaformanninn Þ.K.G. með, órannsökuð,  undarleg tengs beint inn í fjárglæpaspillinguna, er móðgun við vitiborna Íslendinga!

Kveðja, með von um góða lendingu!


mbl.is „Samfylkingin bugaðist"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við myndum sætta okkur við verkstjórn Jóhönnu, ! Af því hún er heiðarleg! Þið....

.. veruleikafirrtu flokkaformenn keppist við að gagnrýna ástandið í flokki hvors annars! það er sami rassinn undir ykkur báðum!

Jóhanna er eini..

.... þingmaðurinn sem við "Búsáhalda-menn" gætum samþykkt sem forsætisráherra!

Geir, blessaður, verður að horfast í augu við glundroða, klofning og hver veit hvað, í eigin flokki!

Sorry, Geir!  


mbl.is „Þurfum öfluga starfsstjórn"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hún þarf að stjórna verkinu"

 Í nýrri frétt um samstarfs-spjall ráðherranna segir:

 ".......Fátt stendur út af borðinu í viðræðum flokkanna, nema að Samfylkingin vill taka að sér „verkstjórnina“, en Sjálfstæðisflokkurinn er ekki reiðubúinn að gefa eftir forsætisráðuneytið. "

Undirr. dettur í hug gömul vísa. sem gæti, hér, átt við um persónu eða stjórn í heild:

" Varla fljótt að velli hnígur. / Valda lyftir merkinu.

Ef hundur upp við húsvegg mígur, / hún þarf að stjórna verkinu."

 


mbl.is Vilja taka að sér verkstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá Björgvin - sérlega að hrinda SKÖRFUNUM úr FME.


Gott hjá þér Björgvin, þótt soldið seint sé. Ég held bara ég gæti átt það til að kjósa þig á Lýðveldisambandlistann í kosningunum sem  þjóð-/utanþings-stjórninn þarf að boða til fyrir næsta haust. 


mbl.is Ingibjörg Sólrún: Afsögn Björgvins kom á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LJÓTUR, SVANGUR DREKI að berjast við ?

Baldur Gautur Baldursson segir í pistli tengdum þessari frétt:

"Það er svo skrýtið að þegar ég hugsa til baka til stjórnmálasögunnar, eins og ég man hana, að hún hefur einkennst af lygum, leynimakki, hinu þekkta minnisleysi og gleymsku stjórnmálamanna, týndum minnisblöðum, kaupum á hlutabréfum í fyrirtækjum sem síðan má ekki tala um, eiginhagsmunapoti, nepótisma (frændsemishyggju í embættaveitingum), þekkingarleysi á "þjóðarsálinni" og almennum hroka. Þetta eru þær hugsanir sem veltast um í kollinum á mér þegar mér verður hugsað til stjórnmálamanna.

Það er oft eins og lygarnar myndi gaddavírsgirðingu milli fólksins og þingmanna/ráðherra. Þessi gaddavírsgirðing fær á sig mynd rósarunna og verður mér hugsað til þyrnigerðisins í ævintýrinu af Þyrnirós, nema bak við þyrnigerðið íslenska liggur ljótur svangur dreki."

Ég bað ekki leyfis að setja hluta pistilsins hér inn, en vona að fyrirgefist, Baldur skrifar kjarna málsins í fáum hvitmiðuðum setningum - Takk!

Bendi, að gefnu tilefni á þetta: http://www.smugan.is/skyringar/vidtol/nr/710  Sérlega er þar gott "komment" Helga Jóhanns Haukssonar með vísan í fjölda mynda.


mbl.is Rof milli þings og þjóðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

TÁRAGAS-TRIKKIÐ mistókst! Og: Hver ákvað að koma af stað óeirðum í Alþingisgarðinum í byrjun friðsamrar kröfustöðu 20 janúar sl ?

Vef-Mbl. segir í dag: "Um tveir þriðju hlutar fólks eru hlynntir mótmælunum undanfarið, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins sem blaðið greinir frá í dag. Langflestir segjast ekki vera hlynntir árásum á lögreglu, ofbeldi eða skrílslátum. "

Fréttir og lýsingar frá mótmælaaðgerðum hafa verið mjög breytilegar.

Undirrituð vill benda á að plastvæddir lögreglumenn ruddust inn í Alþingisgarðinn með látum, meðal annars hrindingum og pústrum, um kl. 13:30 þriðjudaginn 20. janúar 2009 - hálftíma eftir að boðuð kröfustaða hófst - þó allt væri þar með friði og spekt.    Hafa þeir sennilega verið sendir af yfirboðurum og spurning er: hver var tilgangurinn?!   Ég veit þetta því mér var hrint til jarðar, aftanfrá, óvörum af einum garpanna.  Hrindinga og pústra-menn voru, vel að merkja, mikill minni hluti plastvædda hópsins.    Orðtæki segi eitthvað á þá leið að ekki þurfi nema  "einn gikk í hverri veiðistöð" Svo mun um lögreglulið og aðgerðahópa.                 Almennir lögreglumenn stóðu og studdu við húsið í rólegheitum áður en og meðan þetta gerðist.

Sem betur fer eru aðgerðafólk og lögreglumenn nú farin að sjá í gegn um þá herstjórnarlist að reita fólk til reiði og kenna svo "mótmæla-pakkinu" um afleiðingarnar.   Snérist þar TÁRAGAS-TRIKK efstu yfirmanna lögreglu glæsilega í höndum þeirra!

 

 

 

 


mbl.is Meirihlutinn styður mótmælin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband