"Gengi krónunnar skýrir hækkun vísitölunnar." Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að hækkun vísitölu neysluverðs nú megi nánast eingöngu rekja til gengis krónunnar ""
Mannvitsbrekkan segir heldur betur tíðindi! Ætlar hann ekki að kría út á þetta LAUNALÆKKUN hinna LÆGST launuðu? - ASí-formenn og jafnaðarmanna-stjórnin hljóta að skilja þörf þess fyrir atvinnulífshjólin margumræddu!
.
Lokaorð: "Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
mán. 25.5.2009
Ný og betri leið til lausnar á vanda ríkisins - (Björn Valdimarsson Mbl. 25. maí '09)
"Formenn stjórnarflokkanna munu ..eiga fund með fulltrúum Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um stöðugleikasáttmála..." segir í tengdri frétt.
Jú, jú! Þau vilja vel! En lesið hér grein fá almennum, íslenskum borgara sem ekki fer með fleipur dags daglega:
Grein í Mbl (bls 25) 25. maí '09:
Ný og betri leið til lausnar á vanda ríkisins.
NÚ VANTAR fé til að forða ríkinu frá niðurskurði og leysa vanda nýju bankanna og fjármagnseigenda. Ein leið sem ekki hefur verið talað um er að hækka vísitöluna handvirkt um 25%, þannig að ef vístölutryggðar skuldir heimila eru nú 1200 milljarðar króna þá hækka þær um 300 milljarða eða í 1500 milljarða. Hér væru þá komnar tekjur upp á 300 milljarða króna. Svo má hækka gengistryggð lán um 50% (það voru nú soddan fífl sem tóku þau að þau geta nú alveg borgað). Ef þessi lán standa nú í 800 milljörðum nást þar 400 milljarðar í tekjur. Samanlagt verða þetta tekjur upp á 700 milljarða króna sem nægja til að rétta af ríkishallann, leysa vanda nýju bankanna, hækka eignir lífeyrissjóðanna og hækka eignir fjármagnseigenda til að mæta tapi sem þeir hafa orðið fyrir vegna ónýtra peninga- og skuldabréfasjóða bankanna og tapaðra hlutabréfa.
Heimilin sem geta borgað eiga að sjálfsögðu að borga, þeir sem væla geta fengið greiðsluaðlögun. Jafnt skal yfir alla ganga og því er lagt til að miða við að allir verði búnir að greiða skuldir sínar þegar þeir hafa náð 200 ára aldri.
Ef einhverjir eru enn í vandræðum er boðin greiðsluaðlögun. Allir einfættir, tvíhöfða menn sem hafa verið atvinnulausir í 4 mánuði og hafa allar skuldir í skilum geta mætt á skrifstofu ráðdeildarsýslu ríkisins. Skrifstofan er til húsa á Lækjargötu 2, Hvammstanga, opið verður annan hvorn mánudag frá 9-10 fram til 30. maí en frá þeim tíma verður lokað vegna sumarleyfa til 30. september.
Með þessu móti geta Jóhanna, verndardýrlingur fjármagnseigenda og Steingrímur, talsmaður erlendra kröfuhafa, fullkomnað skjaldborgina um fjárhag sinna skjólstæðinga.
Mér finnst ég þurfa að taka það fram að framangreint er meint sem kaldhæðni og öfugmæli. Það er full ástæða til að geta þess sérstaklega því ráðamenn þjóðarinnar og stór hluti hennar virðist almennt vera skilningssljór. Það virðist mörgum erfitt að skilja að þær álögur sem lagðar hafa verið á skuldir landsmanna vegna stórkostlegrar vanhæfni bankamanna og athafna mafíósanna (stundum kallaðir auðjöfrar) í skjóli ríkisvaldsins síðustu ár eru ekki ásættanlegar og þær verður að leiðrétta.
Ef það verður ekki gert verður ekki nóg að mæta með búsáhöld á Austurvöll.
BJÖRN VALDIMARSSON,
hönnuður.
Fundað um stöðugleikasáttmála | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 26.5.2009 kl. 09:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
lau. 23.5.2009
Þjófurinn þrífst, en þjófsnauturinn ekki!
Í tengdri frétt er látið sem núverandi kvóta-"eigendur" hafi keypt löglega eign! Svo er ekki! Fyrstu sægreifarnir og afkomendur þeirra seldu "auðtrúa" fólki það sem þeir áttu ekki. Ekki flóknara en það, Lög í flestum, ef ekki öllum, löndum taka sérlega fram að keypt þýfi sé enn eign þess er stolið var frá. Sem sagt: kaupir þú þýfi verður þú að skila því bótalaust til eiganda!
Ágúst Valdimarsson má þakka fyrir að almenn hegningarlög eru ekki látin gilda um kvótasölu.
.
Lokaorð: "Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"
Eigandinn heldur áfram að borga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)
mið. 20.5.2009
Lögreglukórinn og stolnu hjólin
Frétt af mbl.is:
"Lögreglan þarf að geyma alla óskilamuni í eitt ár og einn dag samkvæmt konungslögum frá árinu 1767. Þegar óskilamunir eru seldir á uppboði rennur andvirðið til félagsstarfs lögreglunnar, til að mynda Lögreglukórsins."
Hvað hindrar tryggingafélögin í að koma á skráningu allra hjóla keyptra á Íslandi? Lögreglukórinn græðir sýnilega ekki mikið á týndu hjólunum, miðað við það sem tryggingafélög borga og ótryggðir tapa.
.
Lokaorð: "Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"
Lögreglukórinn og stolnu hjólin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
mið. 20.5.2009
ASÍ gaf tóninn er gaf eftir samningsbundna hækkun 1. mars. Villi Egils telur sig enn með tögl og hagldir!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
mið. 20.5.2009
Veður er gott - en hvernig eru stjórnmálahorfurnar?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
fös. 15.5.2009
Sykurneysla Íslendinga hefur lengi verið FÁRÁNLEG!
fim. 14.5.2009
"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt"
fim. 14.5.2009