ÞJÓÐIN SJÁLF Á ÞING! - Við viljum frjálsa þingmenn í stað strengjabrúða

Að gefnu tilefni við lok fáránleika-lotu á Alþingi:

þJÓÐIN SJÁLF Á ÞING!-    Við viljum frjálsa þingmenn í stað strengjabrúða! Flokkurinn eini þarf að fara í Langa meðferð og endurhæfingu - samstarfsflokkar hans sl. 18 ár þurfa verulegt aðhald á þingi.

XO er góður kostur, þurfi gamli flokkurinn þinn frí!

     ----     ---     ---- 

Föst lokaorð:

"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"


mbl.is Stjórnarskráin ekki á dagskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EYÐIBÝLI ÚTRÁSARINNAR í miðbæ Reykjavíkur verða að fá að grotna!

15.4.2009 | 9:48
Verið að fara með hústökufólk niður á lögreglustöð. "Lögregla hefur leitt niður hústökufólkið sem var á annarri hæð Vatnsstígs 4."

úr tengdri frétt!

Lögreglunni enn einu sinni sigað á saklausan almenning! Mikið liggur á að vernda RÉTT  EIGNARHALDS-félaga  sem lagt hafa undir sig fjölda tuga húsa í miðborg Reykjavíkur og skilið eftir í eyði.

Ekkert liggur á að rannsaka aðfarir eigenda þessara félaga! Sextán manns er potað í fangelsi tæpri viku eftir að hreinsa upp og lífga upp eitt eyðihúsanna. Enginn einasti "athafnamaður" hefur dvalið 10 mínútur í gæsluvarðhaldi það rúma hálfa ár sem liðið er síðan "athafnir" þeirra bundu þjóðinni milljarða króna skuldabagga. Á Alþingi messar enn háttsettur þingmaður sem ekki er hreinsaður af grun um aðild að  ehf sem jók skuldir íslenskara skattborgara um hundruð milljóna króna. Það er bara eitt lítið dæmi!

    ----    ---    ---- 

Ekki verður föstum lokaorðum sleppt:

"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"  


mbl.is Sextán handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Strák-anganum leiddist!"

Tengd frétt minnti á ameríska vísu þýdda af Helga Hálfdánarsyni:

Sveinn litli gerði Boggu gömlu blinda

á báðum augum, strákanganum leiddist

og rak í augu henni hrífutinda.

Þið hefðuð átt að sjá hve kelling reiddist!

 

     ----     ---     ----

Ekki verður föstum lokaorðum sleppt:

"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"  


mbl.is Leiddist og kveikti í sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SKÖMM FLokksins eykst við að hengja dyggan stuðningsmann - ekki HEIÐURINN!

Guðlaugur Þór Þórðarson sem til stendur að fórna fyrir Heiður Flokksins mun ekki geta fengið ríkisendurskoðun til að rannsaka störf sín hjá Orkuveitu R-víkur.  Það skiptir litlu máli.

Það sem skiptir máli er að framkvæmdastjóri flokksins til 25 ára sem enn hafði prókúru er milljónirnar 55 voru halaðar inn í flokkssjóðina - lýgur! Enginn þorir, af einhverjum ástæðum. að hrófla við honum. Þetta er eins og var með píslarvottinn í Seðlabankanum.

Enginn heldur því fram að GÞÞ hafi ekki vitað um FENGINN frá glæfrafyrirtækjunum, fáir halda því fram að gjafirsömu fyrirtækja til Samfylkingar hafi verið fullkomlega eðlilegar.  Forkólfar og eigendur Sjálfstæðisflokksins skulu bara ekki ímynda sér að þeim takist að hreinsa HEIÐUR með því að fórna dyggum og áhugasömum flokksmanni. Gamla framkvæmdastjóranum tókst ekki að ná HEIÐRI með því að ungur eftirmaður hans segði af sér.  Það sem þið fáið út úr þessu er aukin SKÖMM!


mbl.is Ríkisendurskoðun hefur ekki heimild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SKULDUÐU FLOKKAR MILLJÓNUM? Hverskonar málfar er þetta?- hverskonar skuldafargan er þetta?

"Skuldir stjórnmálaflokkanna fimm, sem nú eiga fulltrúa á þingi, námu um 475 milljónum króna í lok ársins 2007. Þar af skuldaði Framsóknarflokkurinn 154 milljón um og Samfylkingin 124 milljón um . " Segir í tengdri frétt. SKULDUÐU FLOKKAR MILLJÓN- UM ?...

Fordæmi FLokksins í spillingarmálum verður ekki fylgt - Jafnvel SUS-ar ættu að skilja það

"Aðrir flokkar fylgi fordæmi Sjálfstæðisflokksins -er áskorun frá SUS" að því lesa má í tengdri frétt. Það er bókstaflega lýjandi að lesa furðuyfirlýsingar í FLokks-miðlinum frá Flokksdeildum og öðrum Flokkspersónum um að fylgja fordæmi þeirra....

Enginn hálfdrepinn í Reykjavík heila nótt - Stendur til bóta - SKEMMTI-staðir opna í dag

13.4.2009 | 7:27 "Allt var með kyrrum kjörum á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Engar tilkynningar voru um líkamsárásir .... " segir í tengdri frétt. Þetta stendur til bóta: Skemmtistaðirnir opna aftur í...

Loftur Altice Þorsteinsson! - góður að vanda ;)

Loftur Altice Þorsteinsson | 9.4.2009 Samfylkingin fjármögnuð af Evrópusambandinu ? "Alvarlegar grunsemdir hafa vaknað um að Samfylkingin hljóti umfangsmikla fjárstyrki frá Evrópusambandinu, beint og óbeint.... " segir í pistli LAÞ frá 9. apríl sl....

X-D verður X-O í þetta sinn - Flokkurinn þarf að fara í Langa Meðferð

"Mikill titringur hefur verið innan Sjálfstæðisflokksins síðustu daga vegna frétta.." segir í tengdri frétt. Hörðustu varnarmenn Fl-okksins hér á Mogg-bloggi eru ýmist lagstir í fréttir af enska boltanum - eða lýsa frati á hegðun forystunnar. Fréttir...

Vesæll bakaradrengur hengdur - enginn smiður krossfestur -og það á föstudeginum langa ?

"Engin niðurstaða að loknum þingflokksfundi" segir í tengdri frétt Getur verið að menn ætli loks að hugsa sinn gang? - og hætta hengingum og krossfestingum rétt í bili - þótt dagurinn hæfi óneitanlega vel til aftöku. ---- --- ---- Ekki verður föstum...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband