"Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, taldi nauðsynlegt að styrkja þingið. Hans mat væri að ef 31 maður sinnti eingöngu störfum við stjórnlagaþing i hálft ár ætti kostnaður að vera mun lægri en þessar tölur segðu til um." og: "Siv Friðleifsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, lýsti yfir þeirri afdráttarlausu skoðun sinni að mjög mikilvægt væri að sett yrði stjórnlagaþing hið fyrsta. - Aðgreina þyrfti löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald með skýrari hætti en nú væri. - Alþingi hefði ekki risið undir því að breyta stjórnarskránni sem nokkru nemi. Skráin væri mjög gamaldags og skoða þyrfti miklu betur hvernig ætti að aðgreina valdaþættina. - Taldi hún endurskoðun stjórnarskrárinnar geta haft mikinn sparnað í för með sér." og lögðu þau ofantalið, m a, til mála í umræðu um á Alþingi í dag. Sjá langa, tengda frétt.
Bæði Siv og Pétur taka vel á aðalatriðum málsins - ekki síst hve geypilega úrelt núverandi stórnarskrá er - og lagði Pétur til skynsamlegar aðferðir við breytingu stjórnarskrár - meðan aðrir þeir Sálfstæðisflokksmenn er töluðu virtust óttast breytingar mjög - þá mest stjórnlagaþing ;)
Ekki má sleppa föstum lokaorðum:
"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"
Tekist á um stjórnlagaþing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæl og blessuð, aftur. Ég var einmitt að komast að því að það er búinn að vera "error" í skilaboðakerfinu í marga daga. Fannst dáldið fátt um skilaboð! - reyni að fá lagfært sem fyrst.
Hlédís, 17.3.2009 kl. 23:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.