"Félag íslenskra stórkaupmanna (FÍS) hefur viðurkennt að innan félagsins hafi átt sér stað umræður um verðlagsmálefni .........á sviði matvöru. ....bæði á vettvangi stjórnar félagsins og innan matvöruhóps FÍS og hafi þær gengið lengra en samkeppnislög heimila" segir, m.a., í tengdri frétt
Sekt fyrir athæfi FÍS mat samkeppnisráð "hæfilega" vera 1 - eina -milljón íslenskra Núkróna!
Að vísu hafa dómar á kynferðisafbrotamenn lengi verið "sanngjarnir" með afbrigðum á Íslandi, einnig hafa morðingjar sloppið nokkuð vel. Fjármála-afbrot hafa hinsvegar ekki liðist vel, sérlega ekki ef brotamenn voru smákrimmar, eða brutu gegn stórlöxum og RÍKINU! Nú voru það BARA neytendur og lántakendur sem töpuðu - meðan ríkið og bankarnir græddu! Hva - það skiptir varla miklu!
I milla í sekt .... svo aftur út að leika ykkur og aldrei gera sona attur!
Ja-hjerna hér!
FÍS viðurkennir brot á lögum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Mér varð óglatt þegar ég las þetta. Blaut tuska framan í okkur öll.
Finnur Bárðarson, 12.2.2009 kl. 12:19
Glatt verður manni amk ekki, Tinna og Finnur!
Hlédís, 12.2.2009 kl. 12:56
Hér er bröskurunum klappað á bakið!
Auðun Gíslason, 12.2.2009 kl. 13:05
Æ Æ við skulum vorkenna þeim smá, þeir ætluðu auðvitað ekkert að svindla, þetta bara gerðist
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.2.2009 kl. 13:43
Ömurlegt.
Kristín í París (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 14:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.