Byggjum SpítalaHöll og TónlistarHöll til að horfa á - VerslunarHallir og fleiri ónotaðar Hallir!

"Í síðustu viku var greint frá þeirri ákvörðun Landspítalans að loka annarri af tveimur legudeildum endurhæfingarinnar á Grensási en við það fækkar leguplássum úr 40 í 26. " Segir í tengdri grein. Sem sagt:"

Mikilvægar meðferðardeildir lokaðar vegna rekstrar-niðurskurðar - samt virðist snillingunum einna brýnast að byggja SpítalaHöll ofan á alla aðra ofbygginu í landinu!     Hvenær linnir þessum Stórþjóðar-derringi?

 

 

Ekki má sleppa föstum lokaorðum:

"Auk þess legg ég til að verðtryggingar-ólögunum verði eytt!"  


mbl.is Erfitt að hindra skerðingu heilbrigðisþjónustu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rut Sumarliðadóttir

Við getum horft á Tónlistarhúsið ef við þurfum endurhæfingu. Haggi?

Rut Sumarliðadóttir, 19.3.2009 kl. 13:49

2 Smámynd: Hlédís

Auda! Tilvalin heilsubót. 

Í þáttunum "Já ráðherra!" var  smíðaður spítali  - síðan ákveðið að hagkvæmast væri að reka hann alveg án sjúklinga. - Innlagnir og þannig vesen kosta nefnilega so mikið.. "Ráðsi" var steinhissa þar til búið var að skýra fyrir honum hagfræði-dæmið!

Hlédís, 19.3.2009 kl. 16:14

3 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Varð niðurskurðurinn í heilbrigðiskerfinu til vegna þess að það þurfti að búa til peninga til að byggja þetta sjúkrahús Er von þó maður spyrji

Rakel Sigurgeirsdóttir, 19.3.2009 kl. 17:52

4 Smámynd: Hlédís

Ekki öll hringsvitleysan eins, enda væri þá ekkert gaman að henni, eða þannig

Hlédís, 19.3.2009 kl. 20:33

5 Smámynd: Hannes

Ég er hræddur um að mjög margar af þessum sparnaðarhugmyndum muni koma dýrar út til lengri tíma litið sem sagt kasta krónunni og spara aurinn.

Hannes, 19.3.2009 kl. 20:56

6 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Hvað kemur í stað verðtryggingarinnar Hlédís?  Ég ætla ekki að fara svo langt með hugsunina að spyrja hverju Cato gamli hefði svarað.Hann hefði vafallítið stungið upp á jafn auðveldri aðferð og sjálfsagðri og hann vildi beita við Púnverja. En nú getum við ekki beitt þeirri aðferð við þá, sem lánað hafa fé sitt með þessum skilmálum t.d. lífeyrisþega eða væntnlega lífeyrisþega. 

Óskin er fróm en svörin eru ekki á reyðum höndum.

Sigurbjörn Sveinsson, 19.3.2009 kl. 21:47

7 Smámynd: Hlédís

Já, Hannes, einmitt: söfnum aurum, fleygjum krónum, að vanda! Skorið niður rými til  endurhæfingar, þar sem skort hefur á þjónustu svo lengi sem elstu menn muna! Nóg er af fólki til að veita aðstoð - ekki skortir húsrýmið -  En Aukið byggingastúss á að leysa vandann!?

Hlédís, 19.3.2009 kl. 21:59

8 Smámynd: Hlédís

Sæll, kæri Sigurbjörn! Ég ætla mér ekki þá dul að losa alla stertabenduna hér á blogginu ;) - en það fyrsta er að breyta lögunum - þannig að verðtryggingu lána verði hætt! Aðgerðir til sanngjarnrar lækkunnar lánabyrða sem orðið hafa til á síðasta ári, eru flókið, þó ekki óleysanlegt dæmi. Bendi enn á kenningar Gunnars Tómassonar um það - td í Silfri Egils í okt sl.

Hlédís, 19.3.2009 kl. 22:34

9 Smámynd: Hannes

Hlédís byggungar hafa eitt framyfir það að halda starfsemi í eldri húsum og það er að þau lifa eftir daga politískusana t.d Perlan og Ráðhús Reykjavíkur.

Hannes, 19.3.2009 kl. 22:38

10 Smámynd: Hlédís

Satt var lóðið ! - og þar liggur stór hundur grafinn!

Hlédís, 19.3.2009 kl. 22:47

11 identicon

Sæl Hlédís.

Satt best að segja:" Römm var sú taug sem baðaði sig í Snorralaug ! ".

Þetta var svona jafn gáfulegt !

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 20.3.2009 kl. 15:09

12 Smámynd: Hlédís

Sæll, kæri Þórarinn!

'Satt var lóðið' - 'þjófur úr heiðskíru lofti' - og 'alveg út í Hróa' eru misgömul dæmi um þróun tungunnar, eða þannig   Má skrifa lærðar ritgerðir þar um.

Hlédís, 20.3.2009 kl. 16:18

13 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Því miður virðist skerðing í heilbrigðisþjónustu bitna helst a öldruðum og fötluðum.....acut þjónustu er ekki hægt að skerða......en þetta fólk hverfur ekkert....það verður bara tifærsla á kostnaði.   Að mínu mati verða draumar um nýjan spítala að bíða.     Ég er eina af þeim sem vil ljúka við tónlistarhúsið að utan...en geyma innvolsið.   Ég veit að það er dýrt en það skapar atvinnu og svo hrópar þetta ferlíki á mann ófrágengið.Við getum lokað nokkrum sendiráðum,   fækkað utanferðum opinberra aðila og hætt að styrkja ymis gæluverkefni.....

Hólmdís Hjartardóttir, 21.3.2009 kl. 15:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband