Allt ómálefnalegir krakkar! - ályktar spakur Stefán F. Stefáns!

Stefán!   Mér , glænýjum bloggara, skilst að þú sért svona frekar "XD" - Gæti verið misskilningur. Við, þér mun eldri, munum eftir foreldrum okkar koma tárfellandi heim (Táragas var orsökin - ef þú skyldir ekki vita það!) af frægum mótmælafundi 1949. Þar var málefnalega krafan sú að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram um inngöngu í NATÓ. Málefnaleg rök hindra ekki ofbeldi valdhafa! Þú mátt trúa því, drengur minn Wink    Unga fólkið sem þú kallar krakka, er orðið þreytt á að vera, ásamt obba þjóðarinnar, hunsað af valdhöfum vikum og mánuðum saman. Við sem eldri erum þekkjum okkar heimafólk - en höldum samt áfram að ströggla.

Með kveðju og von um vaxandi skilning!


mbl.is Reynt að fá fólk út með góðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Stebbi greyið afrekaði að verða í 20. sæti af 20. mögulegum í prófkjöri hjá íhaldinu fyrir norðan og ætti það að segja alla söguna um vitsmuni þessa eins helsta uppáhaldsgæludýrs og sálufélaga umsjónarmanna moggabloggsins.

Baldur Fjölnisson, 1.12.2008 kl. 18:41

2 identicon

Elskan mín, þú átt eftir að kynnast ýmsum skemmtilegum gaukum á þessum vettvangi. Það sem mér finnst langmerkilegast í fréttinni er síðasta setningin um að FLESTIR hafi verið "ungir að árum", þú, svo ung í anda þrátt fyrir að muna gamla atburði, hvað finnst þér um slíkt "diss"?

Kristín tengdadóttir (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 00:34

3 Smámynd: Hlédís

Kæra Sigrún og Kristín, litli prins!  Þroskaða konan hér er sammála því að þetta sé argasta 'DISS! - bæði tengt aldursfordómum og því að andófsmenn eru alltaf 'dissaðir' í meginfjölmiðlum.

Aldur gefur ekki aukið vit.   Tölvur hef ég átt í 25 ár (bara nettengd í 13 ár)- enda tækni-'frík' með meiru ;D          - Raunar er 93 ára strákur hér í húsinu nettengdur og tölvu-klár!

Hlédís, 2.12.2008 kl. 17:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband