Hafa allir tilvonandi ráðherrar hreint fjárhagslegt mannorð?

Í tengdri fétt: "Ríkisstjórnin kynnt í dag" segir: "Tilvonandi ríkisstjórn hefur lokað sig inn á fundi sem á að standa í allan dag. Búist er við að ný ríkisstjórn verði kynnt á blaðamannafundi klukkan sex."

Þar segir og Össur Skarphéðinsson, glaðhlakkalega, að "að enginn fari af fundi nema svo vilji til að honum hafi verið hent úr nýju ríkisstjórninni. "

Sú krafa stendur enn að allir ráðherrar nýrrar stórnar hafi hreint fjárhagslegt mannorð - hvort sem hent verður út af fundi eða ekki. Galgopaháttur á hér fremur illa við.


 


mbl.is Ríkisstjórnin kynnt í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Sammála, það er eðlileg krafa.

Haraldur Davíðsson, 30.1.2009 kl. 11:51

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

eðlileg krafa

Hólmdís Hjartardóttir, 30.1.2009 kl. 12:07

3 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ég er hrædd um að ekki hafi þeir allir hreinan skjöld.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 30.1.2009 kl. 12:29

4 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Það hlýtur allt svoleiðis að vera uppi á þessu borði sem hvergi finnst....það er mjög skýr krafan um að það komi enginn að þessari ríkisttjórn sem hefur ekki allt sitt á hreinu.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 30.1.2009 kl. 13:06

5 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Jakobína! þú og þeir sem vita eitthvað sem á að vera uppi á borðinu, segið vonandi frá því sem þið vitið og er ekki boðlegt.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 30.1.2009 kl. 13:35

6 Smámynd: Hlédís

Í þingflokki Samfylkingar er, amk, einn maður sem ásakaður er um nýlegt fjármálabrask. Ekki er líðandi að neinn sem ekki er hreinsaður af slíku, verði nú ráðherra.

Hlédís, 30.1.2009 kl. 14:25

7 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ég er innilega sammála ykkur, en það vanra alltof oft að því sé haldið á lofti og það er því alltof oft sem ráðamenn komast upp með að humma af sér óþægindin.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 30.1.2009 kl. 14:36

8 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

já já bara hammra borðið sem fastast og hraðast,,,, þarna á að vera , en það vantar alltof oft að því sé...........

Högni Jóhann Sigurjónsson, 30.1.2009 kl. 14:38

9 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það hefur verið nefnt að nú sé Björg Thorarensen lagaprófessor væntanlegur dómsmálaráðherra í ríkisstjórnarstubbi Jóhönnu. Þessi ágæta kona aflaði sér trausts hjá forystu Samfylkingar og V.g. með vasklegri framgöngu fyrir hönd íslenska ríkisins í úrskurðarmáli fyrir Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóanna. Þar varði hún ríkið fyrir ásökunum tveggja íslenskra sjómanna um að á þeim hefðu verið brotin mannréttindi með dómi og skaðabótakröfu vegna veiða úr auðlind þjóðarinnar sem nefnd er sameign í stjórnarskrá. Mannréttindanefndin úrskurðaði á þann veg að ríkið hefði brotið mannréttindi í þessu tiltekna máli og vísaði því til ríkisstjórnarinnar með kröfu um úrbætur. Ríkisstjórnin fór háðulegum orðum um þennan úrskurð og prófessor Björg hafði sig nokkuð í frammi við að túlka fyrir þjóðinni að þessi úrskurður væri markleysan ein og að reyndar hefði þessi stofnun hvorki vit á né nokkra heimild til að blanda sér í svona "prívatmál" ríkisstjórnarinnar.

En Björg Thorarensen er með óflekkað mannorð það ég best veit.

Árni Gunnarsson, 30.1.2009 kl. 15:24

10 Smámynd: Hlédís

Þú segir mér tíðindin, Árni!  Hún slyppi þó sennilega með áminningu frá Dómstóli Búsáhaldabyltingarinnar. vegna þess að ríkisstjórnin er sett til skamms tíma, í afmörkað verkefni.

Fjárhagslegt mannorð nýs ráðherra verður hinsvegar að vera hreint, vilji ný stjórn vinnufrið!

Hlédís, 30.1.2009 kl. 15:43

11 identicon

Já og kannski bara hreint mannorð yfirhöfuð, hvort sem er fjárhagslega eða á öðrum sviðum.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 21:42

12 Smámynd: Hlédís

Sæl Eva!   Að- sjálfsögðu er tandurhreinn skjöldur bestur. Mikilvægast . er samt nú, að ráðherra sé ekki tengdur inn í fjármála-glæfra. Þar setjum við mörkin - og þykir engum furða. 

Vona að stjórnarmyndunar-fundurinn sem gafst upp í dag, hafi náð þessu! Þar átti að pota inn manni sem verður alls ekki samþykktur. Basta!

Hlédís, 30.1.2009 kl. 22:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband