mið. 28.1.2009
Traust er lykilorðið! Hreint fjárhagslegt mannorð allra nýrra ráðherra er skilyrði fyrir vinnufriði!
Jóhanna og félagar! Munið að setja engan með órannsakaða, vafasama, fjármála-fortíð inn í nýja ríkisstjórn! Nefni hvorki nafn né nöfn, en þið vitið hvaða þingmenn eiga enn órannsakaða fjármálagjörninga sína frá því fyrir hrunið sl. haust. Þeir eru vonandi ekki fleiri en svo.
Traust er lykilorðið! Þessi stjórn má bara samanstanda af fólki sem allir, líka nýja stjórnarandstaðan, þekkja af heiðarleika. "Búsáhalda-hljómsveitin" fer af stað á fyrsta degi nýrrar ríkisstjórnar, ef í hana sest fólk með flekkaðann skjöld. þá á á ég við flekkaðann af fjármálabraski. Kraft, kunnáttu og vilja til að bjarga málum hafa margir. Hreint fjárhagslegt mannorð er aðal-skilyrði fyrir setu í þessari ríkisstjórn.
Síðast en ekki síst: Atla Gíslason í dómsmálin - það blasir við!
|
Býst við stjórn á laugardag |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


ace
amman
andreskrist
annaragna
baldurkr
baldvinj
benediktae
birgitta
brylli
bumba
cigar
diesel
dunni
eask
einaraxel
einarben
elfur
finni
folkerfifl
formosus
gudruntora
haddih
hallarut
halo
hehau
himmalingur
hlynurh
hugdettan
huldumenn
icekeiko
imbalu
jakobsmagg
jennystefania
jensgud
jevbmaack
joiragnars
jonsnae
jonvald
kaffi
kermit
kleopatra
kreppukallinn
larahanna
laufabraud
lillo
malacai
manisvans
mariakr
marinogn
nimbus
nordurljos1
pallvil
rannveigh
robbitomm
sailor
salvor
siggisig
siggith
sigurbjorns
sivvaeysteinsa
skarfur
skari60
skessa
snjolfur
steinibriem
stjaniloga
tbs
trisg
valsol
vefritid
veravakandi
gattin
bofs
gunnarwaage
mariataria
sillagunna
Athugasemdir
Mér líst vel á Atla so far..
Haraldur Davíðsson, 28.1.2009 kl. 21:54
Ekki bara traust.... heldur líka færni til þess að takast á við þau gríðarlegu vandamál sem eru í farvatninu.
Traust hefur að gera með ásýnd..... en færni er raunverulegur eiginleiki til þess að takast á við vandamálin.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 28.1.2009 kl. 22:49
Lúðvík hvað?
Víðir Benediktsson, 28.1.2009 kl. 22:55
" Kraft, kunnáttu og vilja til að bjarga málum hafa margir." stóð þarna einhversstaðar í pistlinum, Jakobína! Ég held að þú, meðal annarra, hafir eiginleika sem til þarf!
Stend við þá fullyrðingu að:
Hreint fjárhagslegt mannorð er aðal-skilyrði fyrir setu í þessari ríkisstjórn!
Hlédís, 28.1.2009 kl. 23:02
GLÆSILEGT hjá þér Hlédís . Heyr ! Heyr!
Hörður B Hjartarson, 29.1.2009 kl. 00:42
Sammála og var búin að skrifa um það. Gæti vel hugsað mér Atla
Hólmdís Hjartardóttir, 29.1.2009 kl. 09:45
Við Íslendingar eigum einn sameiginlegan fjársjóð umfram önnur verðmæti og það er Sagan. Við getum margt af henni lært og meðal annars núna leitt hugann til ársins 1000 er kristni var lögfest á Alþingi á Þingvöllum við Öxará. Þá stefndi í blóðugan bardaga milli heiðinna manna og kristinna. Þá tóks Þorgeiri Ljósvetningagoða að sætta menn og vopn voru slíðruð. Nú stöndum við í líkum sporum og árið 1000. Ef það fólk sem nú situr við að mynda nýja ríkisstjórn byrjar á því að berja okkur í hausinn með því að bjóða okkur upp á ráðherrann sem mælti hin frægu orð á fjöldafundi: "Þú ert ekki þjóðin!" Þá er ég ekki bjartsýnn á þá sátt sem þjóðin hafði gert sér vonir um.
Árni Gunnarsson, 29.1.2009 kl. 10:44
Algjörlega. Annars verður búsáhaldamótmælin framlengd.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 29.1.2009 kl. 13:30
Ég hef efasemdir um að Atli sé áfjáður í ráðherradóm að svo stöddu. En hann er góður í baklandinu. Ég er bara óttasleginn um að áfergjan í ferilsskrána verði dómgreindinni yfirsterkari og að það gleymist hversu ásýnd þessarar stjórnar er mikilvæg með það að tilgangi að lægja öldurnar í samfélaginu. Við erum komin að ystu mörkum í því að forða upplausn sem ábyrgðarlausir einstaklingar nota sér til að vinna óhæfuverk á saklausum einstaklingum eins og lögreglumönnum og heimilum þeirra. Slíkt ástand er ekki létt að stöðva.
Árni Gunnarsson, 29.1.2009 kl. 14:00
Tek undir allt sem þú segir í pistlinum Hlédís... nema þetta með Atla. Afturhaldskommi sem sleikir sig upp við öfgafemínisma.
Gunnar Th. Gunnarsson, 29.1.2009 kl. 17:02
Tveir þumlar upp Hlédís.
LoLz til Gunna stuð - hefur áhyggjur af kommum og femínistum. Ætli hann sé ekki að míga á sig líka yfir hommum og lessum.
Rúnar Þór Þórarinsson, 29.1.2009 kl. 17:10
Fyrst kom svartur forseti og svo þetta.... hvert stefnir heimurinn eiginlega ?
Neee... bara að spauga
Gunnar Th. Gunnarsson, 29.1.2009 kl. 17:27
Þú ert ágætur Gunnar Th! "Láttu engan telja þér trú um annað"
Skil vel að þér lítist ekki á Atla í ríkisstjórn. Við verðum sammála, nú sem stundum fyrr, um að vera ósammála. Ætla að fræða þig á að aldrei kaus ég VG - svo traustið á Atla stafar ekki af flokkstryggð. Hef heldur aldrei kosið D þó "margir bestu vina minna" séu D-menn - hafi jafnvel, sumir, setið lengi á Alþingi. Nóg um það. Kveðja austur.
Hlédís, 29.1.2009 kl. 18:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.