Löggjafarþingmenn! STÖÐVIÐ RAUNVAXTA-OKRIÐ STRAX!

Fyrst þið (ríkisstjórnin) eruð að leggja höfuð í bleyti um varnaraðgerðir, verðið þið að skilja, að nú þarf að lækka RAUNVEXTI, þ.e  okurvexti á verðtyggðum lánunum,  strax - og þó fyrr hefði verið.
       Bankar hafa  hækkað raunvexti  gífurlega síðastliðin fá ár - meðal annars vegna hárra styrivaxta í "lítilli" verðbólgu. Nú lafa stýrivextir rétt í verðbólgunni, en raunvextir eru samt enn gjarna 10 - um 14%!!  Slík vinnubrögð og slikt okur þekkist trúlega hvergi á byggðu bóli nema á Íslandi. Mafíur blóðmjólka þó e.t.v. fórnarlömb sín svona.
Alþingi getur og verður að setja ÞAK á raunvexti.  Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn getur varla haft neitt á móti því!  

Eins og nú háttar stunda bankar 'löglega' sjálftekt á vöxtum verðtryggðra lána. Ef þið skiljið ekki þetta, er ekki von á góðum árangri aðgerða á öðrum sviðum.

Óska ykkur góðs í erfiðu starfi - og að hlutlausari og menntaðri aðilium verði smám saman hleypt meir að björgunaraðgerðum.


mbl.is Aðgerðir kynntar eftir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: H G

Verðtyggt vaxtaokur! - Hvernig eiga venjulegir Íslendingar að standa undir mafíu-okri á sama tíma og þeim er gert að borga skuldir Svikamillu-víkinganna?

H G, 29.11.2008 kl. 19:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband